Fréttir

Gott veður, flottur fiskur

„Við ákváðum að taka smá skrepp eftir vinnu í Brúará í landi Sels,“ sagði Gísli Kristinsson og bætti við; „við hjúin vorum búin að veiða í 50-60 mínutur þegar elsti strákurinn Ísar Valur kom til okkar ásamt vini sínum. Þetta var eiginlega svolítið fyndið því að hann var ekki búinn að kasta tvisvar sinnum þegar fyrsti flugufiskurinn kom á land. Við gleymdum reyndar að mæla bleikjuna en hún var 50cm.  Það kom mér á óvart hversu vel hann tók á fisknum. Eins og hann væri nú búinn að landa þeim mörgum. 

Veðrið var eins gott og það gæti mögulega orðið, logn og 13 stiga hiti og full skýjað með smá skúrum inn á milli. Gæðastund með famelíunni á yndislegu föstudagskvöldi,“ sagði Gísli enn fremur.