FréttirOpnun

Veiðin í Leirá komin af stað

Leirá er loksins laus við ís og áin farin að taka við sér eftir veturinn. Erfitt var að veiða í Leirá um páskana þar sem ísinn var það þykkur að ekki var hægt að losa á helstu veiðistöðum, en með fyrstu vorlægðinni fór áin að opnast. Nú má segja að áin sé laus við allan ís.

Við höfum fylgst grannt með stöðunni og eru fiskar farnir að koma á land nánast á hverjum degi. Veiðimenn hafa orðið varir við fisk á helstu vorveiðistöðunum, svo sem 4, 7, 10 og 14, ásamt öðrum stöðum fyrir neðan efri brú. Sjóbirtingurinn er gjarn á að færa sig á milli staða, sérstaklega þegar mikið vatn er í ánni, og því getur verið gott að vera duglegur við að færa sig og prufa alla veiðistaði sem eru djúpir. Púpurnar eru sterkastar á vorin í Leirá sem og PT, Squrmy og Duracell. Einnig hafa fiskar náðst á litlar straumflugur upp á síðkastið.

Seldar eru tvær stangir saman frá morgni til kvölds og fylgir huggulegt sumarhús með, sem nýlega hefur verið tekið í gegn fyrir komandi tímabil. Húsið hentar vel fyrir minni hópa, rúmar allt að 5 manns en aðstaða miðast við 4 veiðimenn. Eldhús var endurnýjað, nýtt parket lagt, húsið málað að innan og einnig var komið fyrir nýju grilli.

Þessi litla á er sjóbirtingsperla sem allir veiðimenn ættu að prufa.