María Hrönn: Róleg byrjun hjá mér
„Já nú styttist mjög í næsta veiðisumar,“ segir María Hrönn Magnúsdóttir og bætir við; „Ég sit hér í lægðinni sem gengur yfir með snjókomu og slyddu og fagna allri þeirri úrkomu sem kemur niður, hvort sem hún er í regn eða snjóformi. Þó kýs ég nú frekar snjó og rok en rigningu og rok. Nú eru það vangaveltur um hvernig næsta sumar verður. Ég er ein af þeim veiðimönnum sem hafa alltaf trú á að veiðisumarið verði frábært. Er ég því nú þegar búin að bóka í nokkuð margar ferðir sem ég veit að verða frábærar og hef fulla trú á að aflabrögð verði einnig góð.
Þessu til sönnunar þá var ég alveg ákveðin í að kaupa ekki fleiri veiðileyfi eftir skelfingu síðasta sumars. En úpps… leiðinda veður úti og hvað hefur maður þá annað að gera en að fara inn á nýopnaða vefsölu SVFR og bæta svolítið við. Já, ég veit, mér er ekki viðbjargandi. Hef smá áhyggjur að það þarf að fara að taka þakið í gegn hjá okkur, en við einhverra hluta vegna verðum frekar mikið að heiman. Æj, æj ætlaði að vera stillt þetta sumarið og spara. En maður lifir bara einu sinni og sendum því bóndann á aukavaktir sem hann er reyndar alveg til í, þar sem hann fer í flestar ferðirnar nú orðið með mér. En ég held nú samt enn í nokkrar kvennaferðir fyrir mig. Við erum með veiði í öllum mánuðunum frá apríl og fram í september. Dreifing veiðileyfanna er þannig að við byrjum rólega, en svo gefum við í þegar líður á sumarið. Er bara spennt og full tilhlökkunar fyrir komandi veiðisumri,’’ segir María Hrönn enn fremur.

