Gobble Sticky loksins fáanlegt á Íslandi
Viðtal við Andrés Ellert Ólafsson, veiðiáhugamann með meiru, sem er að koma með nýja vöru á markað hér á landi, Gobble Sticky beitu, sem framleidd er í Noregi og hefur sýnt sig að auki aflahlutfall um 52% miðað við samanburðarbeitu, samkvæmt 18 mánaða vísindalegri rannsókn sem gerð var.

„Ég hef verið í veiðinni frá því að ég var lítill gutti, veiddi þá aðallega murtu í Þingvallavatni þar sem fjölskyldan átti bústað. Þar gat maður dundað sér allan daginn við vatnið þar til þurfti nánast að draga mann inn á kvöldin. Kyrrðin og náttúran við vatnið gerði manni gott og ég er ennþá að sækja í þessar góðu stundir sem veiðin gefur manni,“ segir Andrés Ellert.
Þau hjónin eiga þrjá drengi sem allir eru í veiðinni og hefur fjölskyldan m.a. farið í Veiðivötn á hverju sumri í hátt í 30 ár. „Við elskum að fara í Veiðivötn, veiða og njóta þess að vera öll saman í fallegu náttúrunni og kyrrðinni sem þar er.“
„Í fyrrasumar lentum við í því óláni að labrador hundurinn okkar, Teres, komst í makrílbeitu sem einhver hafði því miður skilið eftir á víðavangi. Hann hefur alltaf sýnt makríl áhuga og reynt að stela sér bita. Við vorum semsagt stödd í Skeifunni í Veiðivötnum í dásamlegu veðri og höfðum einmitt verið að ræða það hjónin hvað það væri yndislegt að vera saman fjölskyldan í svona paradís. Allt í einu sjáum við að eitthvað amar að hundinum og hann kúgast alveg svakalega með miklum óhljóðum. Þá hafði hann gleypt makríl í öngli og hann festist langt ofan í kokinu á honum. Við hringdum í ofboði í Bryndísi staðarhaldara sem sagði okkur að hringja í dýralækninn á Selfossi. Sá gat sem betur fer tekið strax við honum og við brunuðum á Selfoss á ótrúlega skömmum tíma. Það var sem betur fer hægt að bjarga honum, en þetta tók á, bæði fyrir hundinn og ekki síst okkur fjölskylduna. Dýralæknirinn sagðist gera svona aðgerðir reglulega og að það hafi verið honum til happs að öngullinn hafi ekki farið ofan í maga eða gert gat á þarmana. Þetta atvik kenndi okkur að það getur oft verið stutt á milli hláturs og gráturs.’’

Andrés Ellert hefur eins og svo margir aðrir í veiði notað makríl sem beitu. Hann segist þó oft hafa blótað makrílnum og stybbunni og sóðaskapnum sem fylgdi honum. „Í kjölfarið á þessu atviki fór ég að velta fyrir mér hvort ekki væri hægt að útbúa samskonar beitu og makríl, sem væri þó laus við stybbuna og sóðaskapinn og sem hundurinn minn myndi ekki vera svona sólginn í. Ég fór sjálfur að gera alls kyns tilraunir með efni, t.d. kavíar, rækjur, fiskúrgang og matarlím og frysti það í litlum klakaboxum. Ég rakst síðan á þessa Gobble Sticky vöru á netinu og fannst þetta bráðsnjöll hugmynd og einmitt það sem ég hafði verið að leita að. Ég pantaði túpur frá Noregi, prófaði þær í Veiðivötnum og á Þingvöllum og leist mjög vel á. Ég lét einnig vin minn, Pál Ágúst Ólafsson, guide og veiðimaður með meiru, prófa Gobble Sticky í veiðiferð sem hann fór í til Kosta Ríka í Mið-Ameríku og hann lét mjög vel af vörunni.“
Meiri veiði með Gobble
Andrés Ellert segir Gobble fyrst hafa komið á markað í Noregi árið 2024. „Það var stofnað með það að markmiði að hjálpa veiðimönnum um allan heim að veiða meiri fisk á sjálfbæran hátt. Einn af aðal stofnendum Gobble Sticky er Sturla Fjellvang, norskur frumkvöðull. Varan er afrakstur ítarlegra rannsókna, hagnýtrar reynslu, virðingar fyrir umhverfinu og ástríðu fyrir því að bæta veiðiupplifunina. Varan er gerð úr umhverfisvænum hráefnum og til að hámarka áhrif. Um er að ræða lífrænt efni sem er 100% niðurbrjótanlegt í náttúrunni. Efnið veldur ekki skaða ef það er innbyrgt, hvorki fyrir dýr né menn, þó ekki sé mælt með því. Umbúðirnar, sem eru einnig umhverfisvænar, eru úr endurunnum pappa og áli. Lokið á túpunum er reyndar úr plasti en verið er að vinna að því að hann verði einnig umhverfisvænn.“

Að sögn Andrésar Ellerts er Gobble Sticky vel þekkt í veiðibransanum í Noregi og víðar. Ásamt Noregi, er varan á markaði í Bretlandi, Svíþjóð, Króatíu, Búlgaríu, Hollandi, Belgíu og nú á Íslandi. Þá er Frakkland einnig í startholunum með að setja vöruna á markað.

„Emil Lindgren, fiskifræðingur sem sérhæfir sig í hljóð- og fiskmælingum, og starfar sem ráðgjafi fyrir Sænska landbúnaðarháskólann (SLU) rannsakaði virkni og afköst Gobble Sticky yfir 18 mánaða tímabil. Niðurstöðurnar sýndu að með notkun Gobble Sticky væri marktæk aukning á veiði í mörgum tegundum. Þetta á sérstaklega við þegar fiskurinn fylgir beitunni án þess að bíta. Við þær aðstæður skráði Lindgren 52% aukningu á aflahlutfalli samanborið við ómeðhöndlaða samanburðarbeitu. Gobble Sticky hefur gefið góða raun og það eru því góðar fréttir að varan sé loks fáanleg á Íslandi.“
Hér er hægt að lesa nánar um rannsókn Emil Lindgren og niðurstöður hennar.
Hvað er Gobble Sticky beita?
- Gobble Sticky beita er vökvakennt gel/krem sem hægt er að nota á margs konar agn, eins og flugur, spúna og öngla með mjúkum gúmmíendum.
- Efnið festist vel við ólík yfirborð og leysist hægt upp í vatni.
- Laðar fiska að á náttúrulegan hátt með lykt og bragði.
- Vörurnar eru vísindalega þróaðar og unnar úr náttúrulegum sjálfbærum hráefnum eins og fisk- og skelfiskafurðum, styrktar og bragðbættar með amínósýrum, kirni/núkleótíðum, steinefnum, karboxýlsýrum, ferómónum og náttúrulegum plöntulitarefnum.
- Um er að ræða fjórar tegundir af Gobble Sticky beitu. Hver túba er u.þ.b. 30 skammtar.


