Veiðivinir 2 komin í bókaverslanir
Komin er út barnabókin Veiðivinir 2 eftir Gunnar Bender sem er framhald um veiðiævintýri vinanna Bjarna og Páls. Að þessu sinni er ferðinni heitið í Veiðivötn, sem er náttúruperla rétt vestan við Vatnajökul. Veiðivötn samanstanda af allt að 50 vötnum sem dreifast um stórt svæði og hægt að veiða fisk í þeim öllum, urriða og bleikjur. Páll og Bjarni geta vart beðið eftir að komast úr bænum til að upplifa ævintýrin sem bíða þeirra í sumarfríinu. Líklegast kynnast þeir einnig nýju fólki og frægu, stórsöngvurum, veiðistúlkum og furðuverum, sem gerir fríið enn skemmtilegra. Spennandi bók fyrir unga lesendur og áhugafólk um vináttu, veiðar og útiveru.
Höfundurinn Gunnar Bender hefur gefið út bækur um laxveiðar, skrifað greinar, ritstýrt Sportveiðiblaðinu, framleitt veiðiþætti fyrir sjónvarp og net, auk þess að halda úti vefsíðu um sportveiðar, veidar.is.
Bókarforlagið Tindur gefur út bókina.

