Flott silings eiði í sumar
„Við fórum upp að Hafravatni, ég og sonurinn í gær, flott veður en lítil veiði,“ sagði Svavar Elliði Svavarsson, sem fór með soninn í veiði í gær. Fiskurinn hefur verið að gefa sig í Harfavatni og einn og einn lax slæðst með.
„Nei veiddum ekkert en félagsskapurinn og kyrrðin við náttúruna góð. Frábært að skreppa þarna smá stund og ennþá hellingur af flugu fyrir fiskinn þarna. Veðrið er svo gott ennþá,“ sagði Svavar Elliði enn fremur.
Silungsveiðin hefur víða verið góð í sumar, vænn fiskur sem veiðist. Vötnin hafa verið að gefa vel já. „Ég er búinn að fara víða í sumar, mikið í Elliðavatn, Þingvelli og Úlfljótsvatn, flott veiði,“ sagði veiðimaður, sem hefur stundað vötnin.
„Fiskurinn er vænn og Hlíðarvatn hefur verið að gefa, byrjaði rólega en kom svo síðar meir,“ sagði veiðimaðurinn. „Efri-Flókadalsá gaf yfir 900 fiska, sem bara gott,“ sagði okkar maður í Fljótunum og Fljótaá í Fljótum hefur gefið á þriðja þúsund bleikjur.
Sumarið hefur verið hagstætt í silungsveiðinni. Hraunsfjörðurinn hefur verið að gefa vel og lax hefur veiðst.
Mynd. Lúkas Víkingur rennir fyrir fisk í Hafravatni í gær í flottu verði

