FréttirVeiðisaga

Ýmislegt hægt að veiða í ám og vötnum

Frá Þingvallavatni /Mynd: María Gunnarsdóttir

Ég varð næstum fyrir sjónmengunarslysi í dag en rétt slapp! Við parið skelltum okkur á Þingvöll til að renna fyrir fisk, við vorum búin að reyna á nokkrum stöðum þegar við ákváðum að athuga með Vatnskot (mætti kalla það rasskot núna), þegar við mættum að trébryggjunni voru þar þjóðverjar, kona, karl og strákur, þau voru búin að leggja undir sig svæðið með stólum, mat, pottum, glösum og fötum. Við ákváðum að renna fyrir fisk á vinstri enda bryggjunnar en það var eina auða svæðið. Eftir smá tíma og nokkur ágætis köst bjargaði Vífill mér alveg þegar hann sagði með mikilli undrun í röddinni: „kallinn er orðinn allsber og er á leiðinni út í vatnið,” þannig gat ég verið alveg laus við að líta við og sjá þessi ósköp. Ég verð að segja að ekki vildi ég þurfa að sjá þýskan strípaling í veiðiferðinni á Þingvöll, þannig að kærastinn afstýrði miklu sjónmengunarslysi. Ég spyr mig nú líka; „má bara stríplast á veiðistað,”segir Steingerður Steindórsdóttir við Þingvallavatn fyrir skömmu og það gerðist líka við Sogið um daginn: Veiðimaður var að veiða þar og tveir allsberir útlendingar voru fyrir honum í hylnum.