Mokveiði í Baugstaðaósi
Hann Viktor Óskarsson aflakló og félagsmaður í Stangaveiðifélagi Selfoss var ásamt vinum sínum að veiða í Baugstaðaós fyrir nokkrum dögum og gekk veiðin vægast sagt vel. Þeir bókuðu 44 fiska, þeir tóku kvótann og slepptu restinni. Þetta var bæði lax og sjóbirtingur. Hann sagði mikið af fiski á svæðinu.
Á meðfylgjandi mynd er Viktor Óskarsson með bústinn og bjartan sjóbirting. Þetta er hluti af veiðinni.
Ölfusá hefur verið að gefa flotta veiði síðustu dagana og veiðimenn að fá vel í soðið.
Hægt er komast í lax og sjóbiting fyrir ekki mikinn pening.


