FréttirRisafiskur

Risafiskur: Stærsta bleikjan sem veiðst hefur í Eyjafjarðará

Í dag veiddi Aron Sigurþórsson stærstu bleikju sem veiðst hefur í Eyjafjarðará svo vitað sé. 
Við bara fullyrðum það. Þessi risastóri hængur mældist 76 cm, vigtaði 11,5 pund og átti heima á svæði 5. Hann tók Krókinn eftir Gylfa Kristjáns.

Við óskum Aroni til hamingju með þennan geggjaða fisk, segir á heimasíðu Eyjafjarðarár.