Stórgöngur að hellast inní Laxá í Leirársveit
Svo virðist sem laxinn sé loksins að ganga í árnar og vel hefur veiðst síðustu daga í ám á Vesturlandi. Við heyrðum í veiðimanni við Laxá í Leirsveit í kvöld og hann hafði aldrei séð svona laxagöngur. Og það sama var að gerast í ósnum í Elliðaánum um miðjan daginn í dag, hellingur af laxi að koma í ána.
„Það er risa ganga að heltast inn í ána rétt í þessu, allavega 200 laxar á brotinu hérna fyrir neðan og annað eins neðar,” sagði Eiríkur Garðar Einarsson við Laxá í kvöld og hann bætti við; „Laxfossinn er fullur af laxi, þér eru stökkvandi laxar um allt hérna, fiskurinn er alltaf að taka en þeir taka svakalega grannt hjá okkur. Konan missti fimm laxa í röð áðan. Ég hef nokkrum sinnum veitt hérna en aldrei svona stórar göngur, þetta verður veisla næstu daga,” sagði Eiríkur ennþá að kasta á laxamerðina á svæðinu.
Laxveiðin virðist allavega vera að komast af stað á Vesturlandi og fiskurinn að mæta nokkrum vikum seinna en menn áttu von á.

