Fréttir

Vöðluskórnir virkuðu vel í Hlíðarvatni

Jón Trausti Guðmundsson í undarlegu „veiðiskónum“ með bleikju úr Hlíðarvatni

„Já við fórum á fjölskyldudaginn í Hlíðarvatn í Selvogi og nýju „vöðluskórnir“ virkuðu bara vel skal ég segja þér,“ sagði Jón Trausti Guðmundsson, sem sleit hásin og þess vegna var hann í þessum undarlegu „vöðluskóm“ í veiðinni, en hann fékk fisk.

„Það var gaman að veiða þarna en hásin slitnaði og þess vegna var ég í þessum undarlegu skóm, ég fékk eina bleikju. En það verður yfir meðalagi þessi hásin hefur sett strik í veiðina þetta vorið, en það voru veiðimenn víða að veiða í vatninu,“ sagði Jón Trausti enn fremur en vonandi losnar hann fjotlega úr „vöðlunum.“

Veiðin hefur ekkert verið sérstök í Hlíðarvatn í Selvogi í vor og sumar en fer vonandi að batna þegar fer að hlýna. Vatnaveiðin hefur víða verið mjög góð og fiskurinn vel haldinn.