Biðtíminn á enda, Þjórsá opnar í fyrramálið
„Við erum að opna Þjórsá í fyrramálið og það er alltaf spenna að byrja veiðina,“ sagði Haraldur Einarsson á Urriðafossi í samtali, en þau Birna Harðardóttir kona hans og Stefán Sigurðsson og Harpa Hlín Þórðardóttir opna Þjórsá í ár. Laxveiðin er að byrja í fyrramálið og svo opnar hver laxveiðiáin af annarri, í Norðurá í Borgarfirði 4. júni en þar hafa sést laxa og einnig hafa laxar sést í Laxá í Leirársveit, fyrir viku síðan, þrír laxar í Laxfossi. Þar er búið að skoða þó nokkuð í Elliðaánum en ekki sést lax ennþá en örugglega stutt í að hann mæti á staðinn. Silungsveiði hefur verið stunduð í Blöndu núna um hríð og hefur gengið ágætlrega, áin opnar 5. júní.
Sumarið er stór spurning, tveggja ára laxinn er stóra spurningin hverning hann mæti þetta sumarið en vonandi kemur hann mikið og svo eins árs laxinn.

