Fréttir

Veiðiferð sem ekki gleymist

,„Síðastliðna helgi fórum við fjölskyldan í veiðiferð, ég, Stefán Hilmir, ásamt börnunum mínum Eydísi Helmu, Heðni Ými og litla Styrmi Haka. Veðrið var með ágætum, sólin skein og stemningin var góð,“ sagði Stefan H Stefánsson í Laugarvatn og bætti við; „aflinn brást okkur ekki. Bleikja og urriði. Allir tóku þátt — jafnvel Styrmir Haki, yngsti liðsmaðurinn, fylgdist með öllu með glampa augum. Mest kom á mýslu númer 18, fluga eftir Gylfa frænda , algert leynivopn a svæðinu. Dagurinn endaði með fullt af góðum minningum og bros á vörum hjá öllum. Við hlökkum mikið til næstu veiðiferðar,“ sagði Stefán enn fremur.