Fréttir

Flott veiði, flottir fiskar

Hrafnar Jón Gíslason

„Þessi ungi veiðimaður fékk fyrstu fiskana sína. Hrafnar Jón Gíslason 9 ára, tók 4 fiska um helgina. Frá 50 cm upp í 62 cm sjóbirtinga,“ sagði Gisli Kristinsson um veiðitúr helgarinnar og bættir við; „fiskarnir tóku Toby spún. Veður var alls konar. Vatnshiti árinnar var um 5 gráður.

Hann var í skýjunum með fyrstu fiskana sína sem hann hefur veitt.  Hrafnar er upprennandi veiðimaður og lét kulda og leiðinlegt veður sko ekki stoppa sig. Svo í dag sunnudag fékk Rut Magnúsdóttir sinn fyrsta sjóbirting líka. Hann var örlitið minni eða ca 50 cm,“ sagði Gísli enn fremur.
Gísli, pabbi Hrafnars, fékk líka 3 birtinga um helgina. Alls komu 8 birtingar á land þessa upp helgi.

Á einni myndinni af Hrafnari er birtingurinn mjög laxalegur og hafa komið upp umræður hvort þetta sé lax eða birtingur. Sumir segja blendingur. En líklegar er að þetta sé bara laxalegur sjóbirtingur.

Rut Magnúsdóttir
Hrafnar með laxalegan sjóbirting