FréttirVeiðileyfi

Fish Partner tekur við rekstri Kolku

Við veiðar í Kolku í Skagafirði

Árnar eru tvær og nefnast Hjaltadalsá og Kolbeinsdalsá, þær mætast svo og nefnast þá Kolka. Þær renna á sögulegu svæði, steinsnar frá Hólum í Hjaltadal. Árnar halda vatni mjög vel og eru með fjölbreyttum veiðistöðum. Nokkur laxavon er einnig í ánum ásamt sjóbirtingi. 

Kvóti verður nú minnkaður til muna og verður hámark leyfilegt að hirða 3 bleikjur á stöng á dag, en veiðisvæðið ofan við stíflu í Kolbeinsdalsá er eingöngu veitt og sleppt. Einnig er sú breyting að eingöngu er heimilt að veiða á flugu á öllu veiðisvæðinu. 

Veiðihús er á svæðinu sem er aðeins komið til ára sinna en mun fá góða uppliftingu fyrir veiðitímabilið. Gistipláss er fyrir alls átta manns í húsinu. 

Veiðitímabilið er tvískipt, annars vegar vorveiði, sem er heimil frá 1 apríl í ofanverðri Kolbeinsdalsá og svo á svæðinu öllu frá og með 20. júní, til og með 20. september. 

Fish Partner vilja bjóða þeim sem haft hafa föst holl og eru til í að veiða á svæðinu á þessum breyttu forsendum, forgang á hollum en svo fara þau í vefsölunna á næstu misserum.