FréttirLaxveiði

Frábærir tónleikar í Laugardagshöllinni – fór svo til Noregs í laxveiði

Bubbi Morthens með flottan lax úr Laxá í Aðaldal

Þeir þúsundir sem mættu á afmælistónleikana hjá Bubba Morthens eru sammála um að þeir hafi verið meira frábærir og menn eiga ekki mörg orð um þá, þetta var bara frábært. „Þetta voru frábærir tónleikar,“ sögðu félagarnir Þór Hauksson og Ingvar Bender sem sóttu þá eins og þúsundir annarra. 

Bubbi tekur sér ekki mikla hvíld þó svo að hann hafi slitið liðband, hann er á leiðinni í veiði til Noregs og unnir sér lítillar hvíldar karlinn. „Noregur í veiði,“ segir Bubbi Mortensen og þegar hann kemur heim aftur bíður Laxá í Aðaldal þar sem hann dvelur löngum stundum við laxveiðar, þar verður Bubbi í marga daga eins og síðustu sumur, enda Laxáin hans uppáhalds laxveiðiá. En núna er það Noregur.