Afi kom frá Eyjum til að veiða
Afinn spurði barnabarnið sitt hvort það vildi fara á veiðinámskeið um helgina og barnið vildi það. Hallgrímur Sölvi Viðarsson barnabarnið fór á Flugukastnámskeið SVFR og Veiðiskólans fyrir byrjendur 10-15 ára á Rauðavatni sl. laugardag. Afinn Guðbjörn Guðmundsson ákvað að koma með á námskeiðið enda veiðimaður mikill úr Vestmannaeyjum með vestfirskt blóð í æðum til að styðja strákinn sinn. Hallgrímur lærði mikið á námskeiðinu og veiðitökin urðu mikið betri. Eftir námskeiðið var farið beint á Elliðavatn og æft sig á stönginni enn betur. Ekkert varð fiskeríið en æfingin skapar meistarann og skemmtilegar minningar urðu til.



