FréttirOpnun

Norðurlandið að tikka inn í veiðinni

Stefán Sigurðsson með flottan sjóbirting í Eyjafjarðará í dag

„Þetta gengur frábærlega hérna í feðgaferðinni og við fengum 25 fiska í dag, nokkra stóra og þessi á myndinni eru 87 sentimetrar, já þetta gengur vel hérna,” sagði Stefán Sigurðsson á bökkum Eyjafjarðarár er við heyrðum í honum og hann bætti við; „við verðum hérna fram á laugardag, þetta verður flottur túr.

Atli Einarsson með fisk á bökkum Húseyjarkvíslar

Í Skagafirði, þar sem Karlakórinn Heimir ræður ríkjum allavega í söng, var veiðimaðurinn Alti Einarsson á bökkum Húseyjarkvíslar og það gekk vel. ,,Þetta var bara fínt hérna en hollið sem var undan okkur veiddi 22 fiska en við fengum 10 fiska eftir hádegi í dag, var að landa þessum fiski sem ég held á myndinni. Það hafa verið allavega 4 holl á undan okkur hérna,” sagði Atli i lokin.

Veiðin er að komast á fleygiferð það hefur hlýnað og það er það sem vantaði verulega síðustu daga. Og fiskurinn er að gefa sig hjá veiðimönnum víða um land. Það er það sem allir voru að bíða eftir, sérstaklega veiðimenn á öllum aldri.