Næst er það Geirlandsá
„Ég skaust í Hólsá Austurbakka ásamt félaga mínum, rétt kíktum í tæpa þrjá klukkutíma, seinni partinn í gær.” sagði Sigursveinn Bjarni Jónsson og bætti við;
„Ég fékk flottann birting í öðru kasti neðan við Ármótin. Hann mældist 63 cm, fékk hann á black ghost í yfirstærð. Urðum lítið varir að öðru leyti. Aðstæður voru nokkuð krefjandi, hávaðarok og svo gekk á með ausandi rigningu. Áin var kakólituð alveg niður í ós og allar eyrar á kafi. Er svo á leiðinni í árlegt holl í Geirlandsá á mánudaginn.”

