Fimmtán ára flugukast.is
„Flugukast.is heldur upp á 15 ára starfsafmæli sitt árið 2026 og í sumar verður úrval námskeiða í boði,“ sagði Börkur Smári Kristinsson um Flugukast.is
„Grunnnámskeið á einhendu verða á sínum stað og svo munum við bjóða frekari kennslu í Spey köstum á einhendu og tvíhendu. Námskeiðin eru skipulögð þannig að gæði kennslunnar sé í fyrirrúmi. Einungis 4 þátttakendur eru á hverju námskeiði sem tryggir að nemendur fái góðan tíma með kennara en jafnframt tíma á námskeiðinu til að æfa kennda tækni.
Allar upplýsingar um námskeiðin má finna inn á flugukast.is og þar fer einnig skráning fram. Hægt að senda fyrirspurnir á info@flugukast.is ef óskað er eftir einkakennslu fyrir einstaklinga eða hópa,“ sagði Börkur Smári enn fremur.


