Algjört bingó í Laugardalsá!
Tveggja daga holl lauk veiðum í hádeginu í dag og óhætt er að segja að ferðin hafi verið hreint út sagt stórkostleg. Þegar upp var staðið höfðu veiðimennirnir landað 24 löxum og það sem meira er, allir sem tóku þátt fengu fisk á land. Slík samstaða og árangur er ekki sjálfgefin í laxveiði og segir sitt um ástand árinnar þessa daga.
Laxarnir dreifðust vel um ánna og komu úr hyljum og strengjum allt frá Skeggjastaðafljóti niður í Pokastreng, sem sýnir hversu víða fiskurinn var genginn og tilbúinn að taka fluguna.
Daginn áður en hollið mætti fékk áin góða og kærkomna rigningu sem hressti vel upp á aðstæður. Síðan bætti náttúran enn í og lét aftur rigna síðdegis á öðrum veiðidegi. Það var eins og allt smelli fullkomlega saman; vatn, veður, fiskur og góðir félagar við árbakkann.
Á svona stundum sýnir þessi elska af sér sínar bestu hliðar og útskýrir af hverju svo margir fluguveiðimenn eru gjörsamlega heillaðir af Langadalsá. Enda af mörgum kölluð paradís fluguveiðimannsins, Það er erfitt að vera ósammála. Náttúran er einfaldlega svo mögnuð að manni finnst vart geta verið betri staður í heiminum en við árbakkann með stöng í hendi.
Eftir tvo daga af frábærri veiði, góðum félagsskap og ógleymanlegum augnablikum var stemningin þannig að áður en menn kvöddu hafði verið bókað aftur fyrir næsta ár. Það segir líklega meira en mörg orð um hvernig ferðin heppnaðist.

