SVFR með skapandi leik v. sólmyrkvans
Á morgun, 12. ágúst 2026, hverfur sólin um stund. En eins og fyrir töfra birtist hún aftur og skín á ný.
Villtir laxar búa líka yfir sínum eigin töfrum. Þeir klekjast út í íslenskum ám, synda langt út á haf og rata síðan, einhvern veginn, alltaf aftur heim.
Í tilefni af sólmyrkvanum ætla SVFR og Verndarsjóður villtra laxastofna (NASF) að bjóða börnum félagsmanna að taka þátt í skemmtilegu og skapandi verkefni.
Við hvetjum þau til að fylgjast með sólmyrkvanum, líta í kringum sig, finna eitthvað í náttúrunni sem veitir þeim innblástur og nota hann til að teikna mynd og svara einni einfaldri spurningu.
Hér að neðan má finna verkefnablað sem hægt er að prenta út og fylla út. Fyrir þá sem ekki eiga prentara verður einnig hægt að nálgast útprentuð eintök á opnunartíma skrifstofu SVFR á Suðurlandsbraut 54.
Þegar verkefnið er tilbúið má senda það annað hvort í pósti eða með tölvupósti til SVFR (svfr@svfr.is) eða NASF (nasf@nasf.is)
Valdar teikningar og svör verða síðan birt í fjölmiðlum til stuðnings íslenskri náttúru og vernd villta laxins.

