Langá að fyllast af laxi – eins og gamla daga
Það er sannarlega hægt að segja að það sé veisla í vændum í laxveiðiám eins og Elliðaánum, Korpu, Langá og Gljúfurá þessa dagana. Árnar eru að fyllast eða orðnar fullar af laxi á stórum svæðum. Allt önnur staða en í fyrra nema kannski í Elliðaánum þar gekk mikið af fiski í fyrra.
„Ég hafði heppnina með mér um daginn þegar ég sá auglýsta lausa stöng fyrir hádegi í Korpu fyrir fáum dögum,” sagði Ásgeir Ólafsson sem var í Korpu og áin er fullt af fiski. Myndband sem sýnir laxatorfu í stíflunni sannar það.
„Var fyrstur til og náði að klófesta stöngina. Veðrið var flott og mikið vatn í ánni eftir miklar rigningar undanfarið. Það fór svo að ég landaði 5 flottum löxum og missti einn. Þetta var óvænt og skemmtilegt þar sem laxinn í Korpu hefur verið erfiður í töku í sumar líkt og síðasta sumar. En mjög mikill lax er í ánni og yfir 800 laxar farnir í gegnum teljarann í þessari litlu á,” sagði Ásgeir ennfremur.
Þeir bræður Ingvi Örn og Hafsteinn Ingvasynir voru við ósinn á Langá á Mýrum í dag og fyrir neðan laxastigann var fiskur við fisk. „Já við sáum mikið af laxi, sjaldan séð svona áður, vatnið er líka frábært núna,” sagði Ingvi Örn á bólakafi út í miðri Langá að gæda veiðimann. En þeir bræður hafa oft séð mikið af laxi í ánni enda aldir upp á bakkanum með föður þeirra Ingva Hrafni heilu sumrin. „Þetta minnir að gamla tíma við Langá,“ segir Ingvi Hrafn.
„ Já það er mikið af laxi að ganga í Langá núna, stórar göngur,” sagði Ingimundur Bergsson hjá Stangveiðifélagi Reykjavíkur og bætti við; „og sannarlega í fleiri ár hjá okkur.”
Yfir 500 laxar hafa gengið í Gljúfurá í Borgarfirði sem er frábær en heilu vikurnar í fyrra sást ekki fiskur í ánni. Elliðaárnar er bara veisla núna mikið af fiski og veiðimenn að fá flotta veiði. Allt getur breyst á einu ári til hins betra sem betur fer fyrir veiðimenn.


