FréttirOpnun

Sá stóri slapp í Hítará

Einn af fyrstu löxunum á land í Stóru Laxá /Mynd: Finnur

Hítará opnaði fyrir veiði þann 17. Júní. Fyrsti laxinn veiddist í Bóndabeygju þann dag. Að auki landaði opnunarhollið löxum úr Flesjufljóti og Langadrætti. Fjórir misstust við erfið skilyrði, en norðan bál setti svip sinn á veiðarnar. Einn misstu fiskana var sannkallaður stórlax sem fór af eftir 25 mínútna viðureign á Breiðinni.

Fyrstu laxarnir eru komnir á land í Stóru Laxá í Hreppum. „Já það veiddust þrír fyrstar daginn,“ sagði Finnur Harðarsson og bætti við; „fín byrjun í litlu vatni. Svo komu nokkrir laxar í morgun,“ sagði Finnur enn fremur.

Stórlax slapp í Hítará

Byrjunin í Hrútafjarðará lofar góðu og veiddust fjórir laxar fyrsta daginn sem áin opnaði. Háeyjarhylur, Stokkur, Brúarhylur og aftur Brúarhylur gáfu laxa fyrsta daginn. Fjórar bleikjur veiddust líka og Dumbafljót var sterkt í henni. „Flott byrjunin,“ sagði Dagur Fannar Ólafsson um opunina.