Kjarrá opnaði á 12 löxum í morgun
Hver laxveiðiáin af annar opnar þessa dagana, Kjarrá í morgun og þar veiddust 12 laxar fyrir hádegi. Miðfjarðará opnaði líka í morgun og þar veiddust nokkrir laxar en Dave McCormark veiddi fyrsta lax sumarins í ánni. Laxinn var 85 sentimetra hrygna sem veiddist í Hlíðarfossi í morgunsárið.
„Við erum búnir að veiða fimm laxa hérna í hollinu í Þverá, þetta bara allt í lagi,” sagði Þröstur Elliðason við Þverá, en Óðinn Helgi Jónsson veiðifélagi Þrastar veiddi í Kirkjustreng 84 sentimetra lax í morgun.
„Fiskurinn er vel haldinn úr hafi og það eru fiskar á nokkrum stöðum hérna í Þverá,” sagði Þröstur enn fremur.
Laxá í Kjós opnaði í morgun og þar reistu menn fiska og sáu töluvert en enginn kom á land. Laxá í Leirársveit opnar í fyrramálið og þar er nokkuð síðan fyrstu laxarnir sáust í ánni svo það gæti orðið fjör í opnun árinnar.

Óðinn Helgi Jónsson með laxinn úr Kirkjustreng í morgun, 84 sentimetra fisk /Mynd: ÞE

