Fréttir

Frábært framtak og nauðsynlegt

Frá árinu 2007 hefur Ingi Þór Hafsteinsson haft frumkvæði að því að bjóða fötluðum og langveikum börnum í silungsveiði í Elliðaánum í maí og júní, í samstarfi við Orkuveitu Reykjavíkur og SVFR, en Ingi Þór starfaði hjá OR í 15 ár. Eftir að hann lét af störfum hjá OR fyrir aldurs sakir hélt hann áfram uppteknum hætti, en í samstarfi við félaga sína í Elliðaárnefndinni og SVFR. Þetta árið var tekið á móti hópum frá Styrktarfélaginu Ás, Einstökum börnum, Klettaskóla og frítímastarfi fatlaðra í Hinu húsinu.

Við vorum svo heppin að fá góðan liðsauka við hópinn sem aðstoðaði gestina við veiðarnar þetta árið. Árni Elvar H. Guðjohnsen mætti í öll fjögur skiptin sem við tókum á móti hópum og stóð sig frábærlega í veiðileiðsögninni. Eins og mörg okkar vita þá er hann mikill áhugamaður um Elliðaárnar, þekkir þær vel og er vel að sér í veiðisportinu