Fréttir

Þolinmæði unga veiðimannsins ótrúleg

Jóhann Manúel verður 8 ára þann 28.maí. Þegar hann var 4ra ára fór hann að veiða í fyrsta skipti með okkur foreldrunum og eftir það var ekki aftur snúið. Hann fékk algjöra veiðidellu og við höfum þrætt bryggjur, ár og vötn síðan öll sumur. 

Þolinmæði hans er ótrúleg við þetta, hann getur verið tímunum saman í öllum veðrum, þó svo að veiðin sé lítil eða engin. 

Hann er mikill áhugamaður um allar veiðigræjur líka og síðasta sumar tíndi hann golfkúlur og seldi þær, ásamt þorsk sem hann veiddi út á sjó með frænda sínum, til þess að safna sér fyrir flugustöng sem hann ætlar að kaupa sér og læra á í sumar. 

Hann hefur veitt margar tegundir, svo sem silung, kola, marhnút, þorsk, ýsu, ufsa og nú síðast rauðmaga sem hann fékk á stöng við bryggjuna á Hjalteyri. 

Hann hefur dregið flesta í fjölskyldunni með sér í veiði, systkini, frændur og frænkur og afi hans er í fullu starfi við að gera að aflanum sem er tekinn með heim.