FréttirGreinSjókvíaeldi

Arnarlax gerir samning við HSÍ – Guðmundur fv handboltaþjálfari æfur

Guðmundur Guðmundsson við veiðar í Andakílsá

„Þessi samningur milli HSÍ og Arnarlax er reginhneyksli og sýnir stórkostlegan dómgreindarskort af hálfu formanns HSÍ, Guðmundar B. Ólafssonar,“ segir Guðmundur Þórður Guðmundsson fyrrverandi þjálfari íslenska landsliðsins um nýjan samning sambandsins og Arnarlax.

„Arnarlax var meðal annars fyrir nokkru síðan sektað af Matvælastofnun að upphæð 120 milljónir króna fyrir að hafa brotið gegn skyldu um að tilkynna um strok á fiski og beita sér fyrir veiðum á strokfiski. Arnarlax sýndi þar fullkomið og vítavert aðgæsluleysi til skaða fyrir íslenska náttúru. Þetta sjókvíaeldi er hörmulegur og mengandi iðnaður sem mun ganga af íslenskum náttúrulegum laxastofni dauðum. Að þiggja peninga frá þessu fyrirtæki sem vill nýta sér íslenskt landslið til að lappa upp á dapurlega ímynd sína er óskiljanlegt. Eitt get ég sagt að ég hefði aldrei samþykkt sem þjálfari landsliðsins á sínum tíma að bera slíka auglýsingu,“ segir Guðmundur á facebook síðu sinni.