Hann var þarna en vildi ekki bíta á
„Þetta gekk ekki núna en laxinn var þarna en vildi ekki fluguna, það er bara stundum svona,” sagði Mikael Marinó Rivera sem veiddi fyrsta laxinn í Skugga í Borgarfirði í fyrra og árið áður lika. En núna vildi hann ekki taka.
„Já laxinn er svo sannarlega mættur þarna en hann vildi ekki fluguna mína núna. Kíkti á hana og rauk svo bara í burtu en ég var kátur þegar hann tók hana ekki, en hann var þarna. Það var gaman að veiða fyrsta laxinn í fyrra og árið áður í Skugganum. Þetta er alltaf gaman,” sagði Mikael ennfremur.
Það styttist verulega í árnar opni hver á annarri en laxinn er á leiðinni. Það er byrjað að kíkja víða en enginn fiskur sést ennþá.
.

