FluguveiðiFréttirNámskeið

Mikill áhugi á námskeiði í flugukasti hjá Veiðiskólanum

Veiðiskólinn, sem þeir Bjarki Már Jóhannsson, Reynir Friðriksson og Jóhannes Hinriksson standa á bak við, hefur verið áberandi undanfarnar vikur með öflug kastnámskeið víða um land. Stofnendur skólans búa yfir áratuga langri reynslu af stangveiði, veiðileiðsögn, fluguhnýtingum og kennslu og hafa hjálpað fjölda fólks að ná betri tökum á veiðinni.

Aðsóknin hefur verið mjög góð, en vel á annað hundrað manns hefur sótt námskeið síðustu vikur. Þar er farið yfir grunnatriði og tækni flugukasts á skýran og aðgengilegan hátt, með áherslu á persónulega leiðsögn og hagnýta þjálfun.

Veiðiskólinn býður einnig upp á sérsniðna kennslu fyrir hópa og fyrirtæki, þar sem farið er yfir alla helstu þætti stangveiði eftir þörfum hvers hóps. Fyrirtækjahópar hafa í auknum mæli nýtt sér kennsluna, meðal annars sem undirbúning fyrir veiðiferðir, boðið upp á fyrirlestra og eða kastkennslu með það að markmiði að auka bæði ánægju og árangur viðskiptavina við árnar.

Um síðustu helgi fór fram námskeið við Rauðavatn þar sem ungmenni frá SVFR fengu tilsögn í flugukasti við góðar undirtektir.

Á næstu vikum hefst kennsla í tvíhendu köstum. Boðið verður upp á bæði byrjendanámskeið og framhaldsnámskeið. Nú þegar hefur verið opnað fyrir skráningar og geta áhugasamir nálgast frekari upplýsingar og skráð sig á Facebook-síðu Veiðiskólans eða á heimasíðunni veidiskolinn.is.

Screenshot