FréttirSilungarVeiðitölur

Yfir tvö þúsund silungar í Mallandsvötnum

Falleg bleikja úr Rangatjörnum

Heildarveiði í Mallandsvötnum sumarið 2026 var 2.051 silungar, en síðasta hollið hjá okkur lauk veiði 3. september,“ segir Einar Páll Kjærnested á Mallandi. „Þetta er um 50% aukning frá sumrinu 2025, þegar veiddust 1.359 fiskar, Mesta veiðin var í Selvatni og Skjaldbreiðarvatn en Rangatjarnir, Urðartjörn og  Álftavatn skiluðu einnig mjög góðri veiði.  Urriðar voru 1.580 og bleikjur 471, eða 23% af heildaraflanum, en bleikjan var áberandi sterkust í Rangatjörnum og Álftavatni, þar sem hún var 44-48% aflans. Meðalþyngdin úr vötnunum var góð og stærsti fiskurinn var 5,5 pund og veiddist hann í Urðartjörn í ágúst. Skjaldbreiðarvatn, Álftavatn, Rangatjarnir og Selvatn skiluð öll yfir 4 punda fiskum.

Sumarið byrjaði af krafti, því 385 fiskar veiddust fyrstu vikuna í júní, og júlí og ágúst voru einnig mun betri en í fyrra.  Sama fyrirkomulag var hjá okkur í sumar og sl. 2 ár, hingað koma 6-8 manna hópar sem leigja allt svæðið í 2-4 nætur og gista í sjálfsmennsku á Mallandi, mikið er um að vinahópar og fjölskyldur séu að koma til okkar árlega.  Það er gaman að fylgjast með því hversu fjölbreyttur hópur fólks stundar vatnaveiði hjá okkur á Skagaheiðinni.

Núna í haust erum við í vegavinnu, höfum m.a. endurbætt veginn niður að Urðartjörn, þar sem við erum að smíða 15 fermetra hús, þar sem veiðimenn geta sest niður, hitað sér kaffi á kamínu og grillað. Undirbúningur fyrir næsta sumar er þegar hafinn og við reiknum með að hefja formlega sölu veiðileyfa fyrir sumarið 2027 fljótlega upp úr áramótum,“ sagði Einar að lokum.

Karl Jónsson yfirflakari við aðgerðarborðið