6 laxar í grenjandi rigningu
„Já við vorum í Andakílsá í dag og veiddum þar 6 laxa, var ekki stætt úti og grenjandi rigning fyrir hádegi,“ sagði Jón Hermannsson, sem var að hætta veiðum þegar við heyrðum í honum. En Andakílsá hefur gefið 135 laxa í sumar.
„Það hækkaði mikið í ánni eftir hádegi og litaðist töluvert, en þá fór veiðin í gang og mikið líf seinni partinn. Þessi lax sem ég er með á myndinni tók Sunray eins og allir laxarnir sem við fengum í dag. Þetta er sá stærsti 15 punda, hann var á í 25 mínútur, en það var í Staurahyl sem hann veiddist. Gaman að veiða Andakílsá,“ sagði Jón enn fremur.
Fáskrúð lífleg
„Veiðin hefur gengið vel hjá okkur í Fáskrúð í Dölum í sumar og eru eru komnir 250 laxar á land, ætli við endum ekki í um 300 löxum,“ sagði Arnór Björnsson, þegar við spurðum um veiðina. „Þetta hefur verið sprengja í sumar, allir í fiskum og síðasta holl fékk 12 laxa. Þetta er frábær veiði hérna,“ sagði Arnór enn fremur.

