710 laxar í Laxá í Aðaldal
Þar síðasta holl endaði í hvorki meira en minna en 78 löxum í Laxá í Aðaldal og áin er kominn í 710 laxa. Síðasta holl svo í 35 fiskum. Í svona heitu og fallegu sumri stríðir slýið okkur talsvert, en þrátt fyrir krefjandi aðstæður er áin vel veiðanleg með að nota rétt veiðifæri á borð við einkrækjur. Við erum enn að bíða eftir að þeir stóru fari að taka sem ætti samkvæmt eldri manna tali að vera eftir fyrstu frostnótt. Ekki hefur enn fryst svo við bíðum róleg eftir fyrsta frosti og hlökkum til að eiga við þá stóru.
Tími storu hængana er detta inn og verður spennandi sjá næstu vikur í ánni hvernig gengur.


