FréttirVeiðitölur

Veiðiveislan heldur víða áfram

Marteinn Jónasson með 93 sentimetra hæng af Gaukastaðabreiðu í Jöklu /Mynd: Ásmundur

Veiðin gengur vel hjá okkur hérna í Jöklu, flott veiði, en við hættum á hádegi á morgun,”sagði Marteinn Jónasson, sem er við veiðar þarna ásamt fleiri vöskum veiðimönnum, en með honum á stöng er Þróttarinn knái Ásmundur Helgason.

En veiðin gengur vel þessa dagana, mjög alla vega á flestum stöðum. En kíkjum aðeins á stöðuna, Þverá í Borgarfirði hefur gefið 1560 laxa, síðan kemur Ytri-Rangá sem er að detta 1000 þúsund, Eystri Rangá er næst með 730 laxa. 

„Frábær veiði hjá okkur, mok á köflum,” sagði Jóhann Davíð Snorrason um veiðina í Eystri-Rangá. Síðan kemur Norðurá í Borgarfirði með 700 laxa,svo Jökla með með næstum 700 laxa, Miðfjarðará hefur gefið 630 laxa. 

Blanda er á fleygiferð 300 laxa en sumar ár fagna ekki miklu, Laxá á Ásum róleg, Víðidalsá og Vatnsdalsá líka. Selá og Hofsá falla undir þann flokk einnig.  En allt getur þetta lagast, hellings tími eftir.