Mikið labb góð veiði
„Veiðivötn núna voru eins og alltaf, dásamleg! Mikið labb, veðrið lék við okkur og veiðin var góð,” sögðu Karl Sigurðsson og Guðrún Helga Ástráðsdóttir, sem voru að koma úr sinni árlegu ferð í vötnin og það gekk vel.
„Við prófuðum bíllausan lífsstílinn frá – ekki sjálfviljug! Sem betur fer bjargaði góður maður málunum og kom með annan bíl. Land cruiser sem stendur við vöðin, fæst gefins gegn því að vera sóttur. En ætli við sækjum hann ekki þegar við erum búin að jafna okkur. Nú er bara að telja niður í næstu ferð,” sögðu Karl og Guðrún enn fremur
Við heyrum í veiðimönnum inn í Veiðivötnum en þá var hvasst en menn og kona að setja í hann. Veiðivötnum hafa verið að gefa góða veiði stórann hluta sumar.


