FréttirOpnun

Sá fyrsti úr Hrútu

Elías Pétur með fyrsta laxinn í Hrútafjarðará

Hrútafjarðará er að opna þessa stundina og þegar komin einn á land og veiðimaðurinn er Elías Pétur Víðfjörð. Laxinn tók í Brúarhyl í Síká sem er hliðará Hrútu og er 77 cm og tók NASF fluguna!
Það má bæta því við að tvö holl eru laus í Hrútu sem eru 18. – 20. júlí og 10. – 12. ágúst, topptími!

Jökla opnar núna á þriðjudaginn 23. júní og það eru Spánverjar sem hefja veiðar. Miklar rigningar og snjóbráð hafa verið undanfarna daga þarna fyrir austan og áin er mikil en er að sjatna og verður vonandi veiðanleg á þriðjudaginn. En spennandi sumar er framundan í Jöklunni