FréttirOpnun

Tveir laxar annar úr Eyrarfossi

Eyrarfoss gaf lax fyrsta veiðidaginn /Mynd: Jón Pétur Sveinsson

Laxá í Leirársveit opnaði í morgun en það voru leigutakarnir og landeigendur sem opnaðu ána eins og hefur verið gert til fjölda ára. Tveir laxar komu á land og annar þeirra veiddist í Eyrarfossi og það var Ólafur Johnson sem veiddi hann.

„Já þetta var 83 sentimetra lax og hann veiddist í Eyrarfossi,” sagði veiðimaður Ólafur Johnson; „gaman að þessu. Fyrsti laxinn veiddist í Viaðtrengjum og það var Haukur Geir Garðarsson sem veiddi fiskinn.

„Það sluppu laxar og einn verulega góður í Sunnefjufossi, það var líf,” sagði Ólafur enn fremur.

Lítið hefur verið að frétta úr Norðurá í Borgarfirði eftir ágæta opnun. Dagar hafa komið nokkir þar sem enginn fiskur hefur veiðst í ánni sem verður að teljast tíðindi.