Skotveiði

Silfurverðlaun á Norðurlandamóti í skotfimi

Íslenska liðið náði silfurverðlaunum á Norðurlandameistaramótinu í Finnlandi í dag í haglabyssugreininni Skeet. Liðið skipa þeir Hákon Þ. Svavarsson, sem einnig varð fyrsti Íslendingurinn til að hampa Norðurlandameistaratitli í skotfimi í einstaklingskeppninni í Skeet, Stefán Gísli Örlygsson, sem er ríkjandi Íslandsmeistari í greininni, og Jakob Þór Leifsson. Þess má geta að þessi grein skotfiminnar er ein keppnisgreinanna á Ólympíuleikum og stefna þessir verðugu fulltrúar okkar að þátttöku á næstu leikum í París.

Ísland silfur
Silfurhafar á Norðurlandameistaramóti 2022
Hákon gull
Hákon Svavarsson
Gullið til Íslands