„Ég og félagi minn vorum að koma úr Hrolleifsdalsá í Skagafirði,“ sagði Ásgeir Olafsson um veiðitúrinn í ána.
![](https://veidar.is/wp-content/uploads/2022/07/900FDE3A-D1ED-4583-A4B1-30818794AB59-1024x473.jpeg)
„Hrollan er lítil og nett sjóbleikjuá þótt þar sé líka að finna urriða og stöku lax. Veiðin í ánni hefur farið rólega af stað í sumar og oft verið meira af fiski í lok júlímánaðar. Við félagarnir fengum 18 sjóbleikjur og tvo urriða. 57 sm sjóbleikjuhængur heilsaði upp á mig í þessum túr en það þykir stór bleikja í þessari litlu á. Þetta var sem sagt fínasti túr og alltaf gaman að kíkja í fallega Hrolleifsdalinn,“ sagði Ásgeir í lokin
![](https://veidar.is/wp-content/uploads/2022/07/947FDB71-21C5-48CE-A107-767BA182B62B-1024x473.jpeg)