„Þetta gengur allt í lagi og það eru að veiðast laxar á hverjum degi í Fuss hollinu, bara gaman hérna,“ sagði Páll Halldórsson við Svartá í Húnavatnssýslu þegar við heyrðum í honum á árbakkanum með ungum og hressum veiðimönnum.
![](https://veidar.is/wp-content/uploads/2022/07/Svartá-2-1024x768.jpg)
„Ég hef aldrei veitt hérna áður og þetta er skemmtileg veiðiá og ég var að landa fiski áðan. Hann tók fluguna Evening Dress og það var í Hólmabreiðu rétt fyrir ofan Áramótin og þetta var tíu mínútu barátta,“ sagði Páll ennfremur.
Og nokkru ofar í Svartá var Elías Pétur Þórarinsson að landa flottum laxi en nokkrir hafa veiðst í hollinu en Fuss er félag ungra veiðimanna um skot- og stangveiði og markmið félagsins er að fræða og vekja vitund ungs fólks á umhverfi veiðanna.
Svartá hefur gefið 11 laxa það sem af er sumri en Blanda í sama vatnasvæði hefur gefið 140 laxa.
Mynd. Páll Halldórsson með lax af Hólmabreiðu í Svartá.