Þúfutittlingur er algengasti spörfugl landsins, stundum nefndur grátittlingur. Hann er einn af okkar bestu söngfuglum. Er minni en snjótittlingur, hálsstuttur, með breiða, stutta vængi og fremur kubbslegur. Einkennasnauður fugl, grágrænn, grábrúnn eða gulbrúnn að ofan. Hann er svartrákóttur að ofan, á bringu og síðum, ljósari á kverk og að neðan. Er með ljósa brúnarák og skeggrák og dauf vængbelti, hvítir stéljaðrar eru greinilegir á flugi. Á haustin eru ungfugl og fullorðinn fugl rákóttari að ofan og gulari á síðum. 

Flug þúfutittlings er reikult og flöktandi. Hann flýgur stundum beint upp í loftið, lætur sig falla niður aftur á svifflugi og syngur um leið. Hann flögrar mikið um og tyllir sér á þúfur eða í tré þess á milli, er félagslyndur utan varptíma.

Fæða og fæðuhættir: 
Dýraæta, etur margs kyns smádýr, bæði fullvaxin og á lirfu- og púpustigi. Etur stundum fræ og smávaxin skeldýr.


Fræðiheiti: Anthus pratensis
Fuglavefurinn
Mynd: María Gunnarsdóttir