Mikið af rjúpu en styggar
Rjúpnaveiðin hefur víða gengið vel og veiðimenn að fá vel í jólamatinn um land. Þar sem snjór var kominn hefur hann tekið upp.
„Það var töluvert af fugli í Öxarfirði en býsna snúið að finna hann,“ sagði Ómar Örn Jónsson, sem var fyrir austan og bætti við; „fuglinn hélt sig allur i þéttasta kjarrinu. Það er allt marautt og rjúpan stygg en við náðum ágætri veiði,“ sagði Ómar Örn enn fremur.
„Við ætluðum um helgina en hættum við, spáin var alls ekki góð,“ sagði veiðimaður sem ætlaði upp í Borgarfjörð en hann hafi fengið fína veiði fyrstu helgina sem mátti skjóta. Vel á jólaborðið.
Veiðimennn eru sammála um að töluvert mikið sé af fugli um land allt en fuglinn styggur í þessu veðurfari sem nú er. Rok og hlýtt víða.


