FréttirVeiðitölur

Frábært veiðisumar í Hítará

 Það er með trega sem við kveðjum eitt af betri tímabilum síðari ára á bökkum Hítarár. Lokatalan þetta sumarið var 869 laxar sem er langbesta útkoman frá því að skriðan féll í Fagraskógarfjalli árið 2018, og í raun þarf að leita aftur til ársins 2015 til að finna sambærilegar veiðitölur. 

Þetta er um margt merkileg útkoma, því laxastofn Hítarár er nú algjörlega sjálfbær og treyst á góða umgengni og virðingu fyrir ánni og umhverfinu.