FréttirSportveiðiblaðið

Sportveiðiblaðið komið út

Sportveiðiblaðið 2. tbl 2026

Í nýútkomnu Sportveiðiblaði kennir ýmissa grasa að vanda. Forsíðuviðtalið er við Valdemar Friðgeirsson veiðimann, leiðsögumann og fluguhnýtara og er það bæði fróðlegt og skemmtilegt enda Valdemar með áratuga reynslu og mikla þekkingu á veiðum.

Margar skemmtilegar minni greinar og sögur frá hinum ýmsu veiðihópum úr ám og vötnum víða um land svo sem Laxá í Aðaldal, Arnarvatnsheiði, Fremri Laxá svo eitthvað sé nefnt. Góð grein um vöðlur og umhirðu þeirra er fróðleg og flestir sem nota þann góða útbúnað hafa gagn af því að kynna sér þá umfjöllun. Nils Former velur í box þær 8 flugur sem hann telur að séu pottþéttar í laxveiði á Íslandi og þar eru bæði þekktar og minna þekktar flugur.

Skotveiðifólk fær sinn skammt og er grein um héraveiðar í Færeyjum áhugaverð sem og grein um skoðveiðar á Sika dádýrum á Írlandi er mjög fræðandi og skemmtileg. Lokakastið er á sínum stað og Fólk og fiskar myndasíðurnar eru fjölmargar í blaðinu.