FréttirSjóbirtingurVeiðitölur

Tannastaðir að gefa góða veiði

Ólafur Hannesson með tvo laxa af Tannastöðum í Hvítá

„Veiðin gekk bara vel hjá okkur á Tannastöðum, fengum fimm laxa ég og veiðifélaginn, flott bara,“ sagði Ólafur Hannesson, sem var að koma af Tannastöðum í Hvítá. „Þetta er þriðja skiptið sem ég fer að veiða í sumar, fór einu sinni í júlí á Tannastaði og svo fór ég einn dag í Veiðivötn. Það er útiveran og félagsskapurinn  sem skiptir höfuðmáli, en svo er bónus þegar maður nær að veiða eitthvað,“ sagði Ólafur enn fremur.

Lax númer 130 var að koma á land í Ölfusánni steinsnar fyrir neðan,  þar sem Ólafur var fyrir neðan að veiða. En Ölfusá hefur verið fengsæl í sumar og gefið vel af laxi og sjóbirtingi.

Og ennþá er hellingur eftir af veiðitímanum svo sénsinn er töluverður.