Bullandi göngur, flott veiði
Til fjölda ára hefur það verið skemmtileg hefð hjá fjölskyldunni að mæta í Straumana í Borgarfirði,“ segir Viktoria Sigurðardóttir og bætir við; „veiðin eins og oftast gekk vel, nóg af bæði laxi og sjóbirtingi í ánni og mikið af skemmtilegum tökum. Bullandi göngur gáfu svo extra kraft í þetta allt saman og var því hver vakt að gefa vel.
Eitt kvöldið, seinasta klukkutímann, þegar veðrið var ekki alveg með okkur í liði, rok og beljandi rigning (eða bara ekta íslenskt sumarveður), kom þetta líka rosalega fjör í ána, hver takan á fætur annarri og magnað hvernig það virkar og veðrið bara hvarf í bakgrunninn og veiðimennirnir, blautir og glaðir, gengu saman upp í hús skælbrosandi og sáttir eftir geggjaða vakt,“ sagði Viktoría enn fremur.





