FréttirOpnun

Alltaf gaman að opna Langá

Jógvan Hansen við Langá snemma í morgun, klár í veiðiskapinn /Mynd: G.B

„Já við erum að opna Langá á Mýrum í góðra vina hópi eins og síðustu ár, við höfum fengið töku hérna neðarlega í ánni en ekkert meira,“ sagði Jóvan Hansen við Langá, en áin opnaði i morgun eins og venja er til.

„Mér líst alltaf vel á sumarið og ætla að veiða töluvert í Langá og Veiðivötnum alla vega. Langá hefur oft gefið okkur vel í byrjun en það mættu vera fleiri laxar gengdir en þetta kemur vonandi í næsta straum,“ sagði Jógvan og hélt áfram að kasta flugunni. 

Eina lífið við hylinn var æðarkolla með hreiður sem lét sér fátt um finnast, Færeyingurinn með stöngina við hylinn.

Laxveiðin fer frekar rólega af stað, tveggja ára laxinn er ekki að skila sér eins og veiðimenn áttu von á. Þverá hefur gefið flesta laxa, síðan Norðurá og svo Þjórsá, þar sem veiðin er miklu minni en í fyrra á þessum tíma.