Fyrstu fluguköstin
„Við feðgar kíktum í bæjarlækinn, Þjórsá í Gnúpverjahreppi, í byrjun júni og var lagt með það upplegg að æfa litla drenginn á flugustöngina,” segir Marvin Valdimarsson og bættir við;
„Það er vanalega ekki mikil veiði í Þjórsá á þessum tíma en þó er alltaf eitthvað af urriða og jafnvel bleikju að vafra um. Laxinn er vanalega ekki mættur svona snemma og svo ofarlega í Þjórsá á þessum tíma.
Vorum við með hóflegar væntingar en aðalega vorum við þarna til að æfa okkur að kasta flugunni.
Við settum Green Butt undir og prófuðum okkur áfram og það var ekki að spyrja að því, eftir nokkur æfingaköst sett drengurinn í sprækan urriða.
Eftir snarpa viðureign, landaði Kristófer Logi fisknum einn síns liðs, á níu feta stöng.
Flottur fiskur fyrir lítinn og áhugasaman dreng sem er að taka sín fyrstu skref í fluguveiðinni,”segir Marvin enn fremur.

