Fréttir

Stöng í afmælisgjöf og fiskurinn á land

Halla Bergþóra og Kristín Björg Hákonardóttir

„Í gærmorgun fór ég á silungsveiðar í Laxá í Aðaldal í landi Laxamýrar með dóttur minni, systurdóttur og dóttur hennar í dásamlegu veðri,“ segir Halla Bergþóra Björnsdóttir og bætir við; „Mikil spenna var hjá yngstu veiðikonunni því bróðir minn Jón Helgi hafði gefið henni veiðistöng í sex ára afmælisgjöf. Hún hafði talað við mig um að ég yrði að taka hana með sér á veiðar og nú var komið að því.  

Eftir tvö köst spurði sú stutta hvar er fiskurinn? Þurfti nú að segja að það væri nú alls ekki víst einu sinni að við fengjum silung og fannst henni það nú frekar langsótt.  Það leið samt ekki á löngu þar til silungur tók hjá henni svartan toby. Um var að ræða mjög fallegan urriða og var mikil spenna þegar við vorum að þreyta urriðann.  Dóttir mín sá svo um að háfa hann og mikil gleði að ná honum á land. Þá veiddi ég einn til og urðum við varar nokkrum sinnum. Veðrið var gott og fullt af fugli á ánni sem gaman var að fylgjast með.  Við vorum sammála að ekkert væri betra en að vera við ánna í góðum félagsskap og eins og alltaf þá spillti veiðin ekki fyrir,“ sagði Halla Bergþóra í lokin.