FréttirOpnunSumarið

Laxinn að mæta víða enginn veit hvernig sumarið verður

Laxinn er mættur í Norðurá sást á Brotinu og í Munaðarnessvæði. Fallegt við Laxfoss /Mynd: María Gunnarsdóttir

„Við vorum að veiða á Seleyrinni og sáum laxa stökkva, allavega fjóra fiska, þeir voru flottir og sáum líka laxa í Hvítánni,“ sagði veiðimaður við Seleyrina í Borgarnesi en laxinn er að mæta á svæðið þessa dagana, enginn veit reyndar ekkert hvernig veiðisumarið verður. Það er stóra spurningin enn eitt sumarið. „Það verður erfitt að treysta á tveggja ára laxinn þetta sumarið en verður vonandi hægt að treysta á eins árs laxinn,“ sagði leigutaki sem þekkir þetta vel og hefur lært fiskeldi utanlands.

Laxinn er að mæta eins og Laxá í Kjós þar sem hafa sést laxar og í Skugga og Grímsá en hann kominn. En hvernig sumarið verður veit bara enginn, vatnsstaðan er ekki góð víða enda mjög lítill snjór. Fiskifræðingar hafa farið varlega í að spá fyrir um sumarið og veiðin í nágrannalöndunum hefur minnkað á milli ára. Það sýna veiðitölur.

En laxinn mætir vonandi í ríkum mæli í árnar og veitir veiðimönnum skemmtun enn eitt sumarið. Veiðitíminn er að bresta á, Þrjósá opnar 1. júni og þar eru veiðimennn orðnir verulega óþolinmóðir að renna fyrir þann silfraða. „Það verður gaman að opna ána,“ segir Harpa Hlín Þórðardóttir.